flugfréttir
Hjólastell á Bombardier Q400 féll saman í flugtaki
- Engann sakaði í óhappi í morgun á flugvellinum í Saarbrücken
Slökkvilið og björgunarteymi á vettfangi í morgun
Lítil farþegaflugvél frá Luxair af gerðinni Bombardier Dash Q-400 hlekktist á í flugtak á flugvellinum í Saarbrücken í Þýskalandi í morgun eftir að hjólastéll vélarinnar féllu saman.
Vélin staðnæmdist á maganum á brautinni en í vélinni voru sextán farþegar og fjögurra manna áhöfn og sluppu allir heilir á húfi.
Vélin var á leiðinni til Lúxemborgar en ekki er vitað enn sem komið er hvað olli því að hjólin féllu saman en samkvæmt
heimildum hætti flugstjórinn við flugtakið eftir að hann varð var við reyk sem lagði frá vélinni.
Fréttamannafundur vegna atviksins mun fara fram klukkan 15 að íslenskum tíma.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.