flugfréttir

Greenland Express gerir samning um leigu á fimm Sukhoi Superjet 100 vélum

- Fá fyrstu tvær SSJ-100-95 vélarnar næsta vor

2. október 2015

|

Frétt skrifuð kl. 12:25

Greenland Express mun fá fyrstu Sukhoi Superjet vélarnar afhentar næsta vor

Greenland Express hefur skrifað undir samkomulag við Rússa um leigu á fimm Sukhoi Superjet 100 farþegaþotum fyrir áframhaldandi áætlunarflug milli Grænlands og Danmerkur sem hefur legið niðri sl. mánuði.

Samningurinn er mikill sigur fyrir Sukhoi-flugvélaframleiðandann sem hefur verið að reyna fá fleiri pantanir í vélina frá flugfélögum í vesturlöndum en flest flugfélög sem hafa pantað vélina koma frá Rússlandi, fyrrverandi löndum Sovíetríkjanna og Asíu.

Á MAKS flugsýningunni sem fram fór í Rússlandi í ágúst gerðu fjárfestingarfélög samning við Sukhoi um aðstoð á fjármögnun á Sukhoi Superjet 100 vélunum fyrir Evrópumarkað til að auðvelda markaðsetningu vélarinnar utan Rússlands.

Greenland Express tilheyrir þeim sáttmála og mun flugfélagið grænlenska fá tvær Sukhoi Superjet 100-95 þotur afhentar næsta vor en aðrar þrjár vélar, sem verða afhentar árið 2017 og 2018, verða af gerðinni LR sem hafa lengra flugþol og geta flogið allt að 1.500 km lengri vegalengd.

Þótt að Grænland sé undir stjórn Danmerkur þá er landið hlutlaus aðili og tilheyrir því ekki þeim löndum Evrópu sem hafa beitt viðskiptaþvingunum gegn Rússum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga