flugfréttir
Er markaður fyrir notaðar Airbus A380 risaþotur?
- Styttist í að fyrsta A380 sem afhent var verði skilað til leigusala
Airbus A380 risaþota Singapore Airlines á flugvellinum í Hong Kong
Svo gæti farið að einhverjar hræringar verði á risaþotumarkaðnum þegar kemur að því að leigusamningur á fyrstu Airbus A380 vélinni, sem Singapore Airlines fékk í flotann árið 2007, rennur út.
Singapore Airlines hefur enn ekki gert upp við sig hvort félagið ætli að leigja vélina áfram eða skila henni
til leigusala en ef risaþotunni verður skilað mun það verða hornsteinn fyrir Airbus þar sem aldrei áður
hefur notuð A380 farið á leigumarkaðinn.
Leiguverð á Airbus A380 gæti haft áhrif á söluverðið hjá Airbus á nýrri risaþotu en flugvélaframleiðandinn evrópski
hefur átt í basli við að fá nýjar pantanir í A380.
Singapore Airlines var fyrsta flugfélagið til að fá Airbus A380 vélina fyrir 8 árum síðan en leigusamningur var gerður
til tíu ára og þurfa flugfélög oftast að gefa leigusala eins árs frest til að láta vita hvort að samningur verði endurnýjaður.
Á sama er Malaysia Airlines að reyna að selja tvær A380 risaþotur en sérfræðingar í fluginu segja að Airbus sé
reiðubúið til að aðstoða við leigu á notuðum A380 risaþotum þegar sá tími kemur.
Ekkert flugfélag hefur pantað A380 vélina á þessu ári og er því óvíst hversu mikið virði risaþotan
er á leigumarkaði.
Þess má geta að John Leahy, sölustjóri Airbus, sagði fyrr á þessu ári að hann vonaðist til að ná að selja
25 risaþotur áður en árið er á enda.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.