flugfréttir

Nýtt lágfargjaldafélag stofnað á Jótlandi í Danmörku

10. nóvember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 13:11

Lars Christian Linde, framkvæmdarstjóri Airnavia, á blaðamannafundi í morgun

Nýtt lágfargjaldarflugfélag hefur verið stofnað á Jótlandi í Danmörku sem mun hafa höfuðstöðvar á Álaborg en félagið hefur kynnt 9 áfangastaðir sem félagið mun fljúga til.

Flugfélagið heitir Airnavia og mun félagið hefja flugrekstur í maí árið 2016 með fjórum flugferðum í viku frá Álaborg til London en félagið mun fá Danish Air Transport (DAT) til þess að sjá um flugið með McDonnell Douglas MD-83 vélum.

Þá mun félagið hefja einnig flug til átta áfangastaða í suðurhluta Evrópu á borð Alanya á suðurströnd Tyrklands, Krít, Korfu, Rhodos auk þess sem félagið mun fljúga til Tenerife og Gran Canaria á Kanaríeyjum og til Golden Sans í Búlgaríu.

Danskir fjölmiðlar hafa veitt því athygli að félagið er hvorki meðlimur í samtökum danskra ferðaskrifstofa (Danish Travel Agency Association) né meðlimur í ferðamálaráði Danmerkur (RID) en Lars Christian Linde, framkvæmdarstjóri Airnavia, segir að félagið kjósi að vera „óþægi strákurinn“ á markaðnum (“naughty boy“).

Félagið mun hefja sölu á flugferðum 13þ nóvember á vefsíðu sinni airnavia.dk og eru 1.000 farmiðar í boði fyrir 49 krónur danskar aðra leiðina án skatta en þess má geta að ólöglegt er að auglýsa flugfargjöld í Danmörku án skatta.

Airnavia sagði á blaðamannafundi í morgun að flugfélagið ætli sér að greiða skattinn fyrir farþega fyrir þá sem bóka fyrstu 1.000 miðanna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga