flugfréttir

Nemendur Keilis fá þjálfun í fullkomnasta flughermi Íslands

23. nóvember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 19:35

Á myndinni eru fulltrúar frá Flugakademíu Keilis og TRU Flight Training Iceland fyrir framan flugherminn í Hafnarfirði.

Flugakademía Keilis hefur samið við TRU Flig­ht Train­ing Ice­land um aðgang að flughermi félagsins fyrir þjálfun atvinnuflugmannsnemenda skólans í áhafnarsamstarfi (MCC).

Þjálfunin fer fram í fullkomnasta flughermi á landinu sem er staðsettur á Flugvöllum í Hafnarfirði og nýtist meðal annars við þjálfun flugmanna Icelandair.

Flughermirinn er af gerðinni B757 “Level D” og er rekinn af fyrirtækinu TRU Simulation and Training og er hann nákvæm eftirlíking af stjórnklefa Boeing 757 flugvélar eins og Icelandair notar í sínum flugrekstri.

Icelandair tók Boeing 757 flugherminn í notkun í janúar sl.

Í flugherminum er hægt að kalla fram öll helstu landsvæði í heiminum í gegnum gagnagrunn sem heldur utan um alla grafík sem birtast á fullkomnum myndvörpum. Hægt er að kalla fram öll helstu veðurskilyrði, stilla inn krefjandi aðstæður og ókyrrð, auk þess sem líkja má eftir helstu bilunum sem geta komið upp á en með því geta flugmenn látið reyna á færni sína.

Þrautreyndir flugmenn munu koma að þjálfun nemenda í áhafnarsamstarfinu, meðal annars Kári Kárason (þjálfunarflugstjóri hjá Icelandair), Arnar Már Baldvinsson (flugstjóri hjá Icelandair), Arnar Jökull Agnarsson (flugstjóri hjá Icelandair), Tómas Beck (flugmaður hjá Icelandair) og Friðrik Ólafsson (flugstjóri hjá WOW air).

Á myndinni eru fulltrúar frá Flugakademíu Keilis og TRU Flight Training Iceland fyrir framan flugherminn í Hafnarfirði.

Snorri Páll Snorrason, skólastjóri Flugakademíu Keilis og Guðmund­ur Örn Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri TRU Flig­ht Train­ing Ice­land, skrifuðu undir samninginn 20. nóvember síðastliðinn. Við það tækifæri gafst nemendum í atvinnuflugmannsnámi Keilis kostur á að skoða flugherminn og húsakynni TRU, ásamt því að fá upplýsingar um fyrirkomulag námsins.

Metfjöldi nemenda stundar nú nám við Flugakademíu Keilis og mun samningurinn þýða að nemendur skólans geta sótt enn fjölbreyttari þjálfun í fullkomnasta tækjabúnaði á landinu.

Nánari upplýsingar um flugnám í Flugakademíu Keilis má nálgast á www.flugakademia.is

Nemendur í atvinnuflugmannsnámi Keilis hlýða á stutta kynningu um samstarfið



Nokkrir nemendur fengju að spreyta sig í flugherminum sl. föstudag og voru margir sem fylgdust með







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga