flugfréttir
Eva Air gengur frá pöntun í 26 farþegaþotur frá Boeing
Boeing 777-300ER vél Eva Air
Taívanska flugfélagið Eva Air hefur gengið frá pöntun til Boeing í 26 farþegaþotur af gerðinni Boeing 787-10 og Boeing 777-300ER.
Eva Air pantaði vélarnar þann 15. október en um er að ræða 24 Boeing 787-10 vélar og tvær Boeing 777-300ER en pöntunin
er metin á eitt þúsund fimmtíu og fjóra milljarða króna.
Vélarnar 26 verða afhentar frá árinu 2017 til ársins 2022 en með því mun flugfloti Eva Air fara yfir 100 vélar árið 2020 og verða þær
notaðar til að leysa af hólmi eldri vélar í flotanum.
Eva Air var eitt af fyrstu flugfélögunum sem pantaði Boeing 777-300ER vélarnar árið 2005 en félagið kom einnig að hönnun vélarinnar
sem fyrsti viðskiptavinurinn með þá tegund en Eva Air hefur 8. stærsta flota af Boeing 777-300ER vélum í heiminum og er í fjórða sæti í Asíu
með 22 slíkar vélar.
Fyrsta Boeing 787-10 mun koma á markaðinn árið 2018 og mun United Airlines, Singapore Airlines, British Airways og Air Lease fá fyrstu vélarnar afhentar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.