flugfréttir
Flugmaður með alvarlegan augnskaða eftir laserárás í aðflugi að Heathrow
Talið er að 1 af hverjum 2 flugmönnum í Bretlandi hafi orðið fyrir laserárás sl. 12 mánuði
Flugmaður hjá British Airways hlaut alvarlegan augnskaða eftir að lasergeisla var beint að flugvél sem hann flaug er vélin var í aðflugi að Heathrow-flugvellinum í London sl. vor.
Það lítur út fyrir það að hér sé um að ræða alvarlegustu laserárásina í Bretlandi þar sem mjög sterkum laserpenni, sem
einungis er notaður við hernað, var beint að stjórnklefa vélarinnar.
Fram kemur að lasergeislinn hafi brennt augnbotna í
hægra auga flugmannsins og hefur hann ekki enn náð bata síðan að árásin var gerð að sögn samtaka breskra flugmanna (BALPHA) en talið er að annar hver flugmaður í Bretlandi hafi orðið fyrir lasergeislaárás á sl. 12 mánuðum.
Flugmaðurinn, sem hlaut augnskaðann, sat hægra megin í vélinni þegar atvikið gerðist og fékk hann meðhöndlun
á sjúkrahúsi í Sheffield en British Airways rannsakar nú árásina.
Jim McAuslan, yfirmaður BALPHA, segir að laserárásir séu mjög stórt vandamál í Bretlandi og t.a.m. þá er vitað um eitt fjölbýlishús í Glasgow sem kölluð er „laser-blokkin“ en þaðan er reglulega verið að beina lasergeislum á flugvélar
í aðflugi.
Tilkynnt var um 400 laserárásir á flugvélar á fyrstu sex mánuðum þessa árs en McAustlan telur að um 4 til 5 árásir
séu gerðar á flugvélar í Bretlandi daglega en aðeins er tilkynnt um helming árásanna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.