flugfréttir
Norwegian fær fyrstu Boeing 787-9 vélina í maí 2016
Boeing 787-8 vél Norwegian
Eftir sex mánuði mun Norwegian fá stærri gerðina af Dreamliner-vélinni, Boeing 787-9, en sú vél verður afhent félaginu norska í maí 2016.
Fyrsta Boeing 787-9 vélin verður jafnframt áttunda Dreamliner-vél félagins en áætlað er að hún muni fljúga fyrsta áætlunarflugið þann 14. maí frá Osló til Bangkok.
Vélin er 6,1 metrum lengri en hinar Boeing 787-8 vélarnar og getur tekið 53 fleiri farþega
Ekki er enn búið að smíða fyrstu Boeing 787-9 vélina fyrir Norwegian en vélin var pöntuð af MG Aviation Limited
og verður leigð til félagsins.
Verið er að undirbúa lokasamsetningu í Everett og eru íhlutirnir komnir í hús en vélin mun koma til með að fá
skráninguna EI-LNI.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.