flugfréttir

Airbus A320neo fær vottun frá EASA og FAA

25. nóvember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 07:08

Airbus A320neo

Airbus fékk í gær vottun fyrir nýju Airbus A320neo vélinni bæði frá evrópskum og bandarískum flugmálayfirvöldum, EASA og FAA, og er framleiðandinn því nokkrum skrefum frá því að geta afhent fyrsta eintakið af vélinni til Qatar Airways.

Qatar Airways mun taka við fyrstu A320neo vélinni í næsta mánuði en framundan eru yfir 4.300 vélar sem á eftir að smíða sem pantaðar hafa verið en Airbus segir að vélin verði 15% sparneytnari en þær Airbus A320 vélar sem eru á markaðnum í dag.

Airbus ákvað árið 2010 að bjóða upp á nýja kynslóð af vinsælustu farþegaþotunni sem framleiðandinn hefur selt sl. áratugi en ári eftir fylgdi Boeing í kjölfarið og kynnti Boeing 737 MAX sem hefur selst í 2.827 eintökum.

Flugsérfræðingar segja samt að það verði krefjandi fyrir Airbus að standa við þá eiginleika og sparneytni sem A320neo á að bjóða upp á.

Vottunin fyrir Airbus A320neo vélinni kemur viku eftir að Bombardier fékk einnig tvöfalda vottun á einu bretti frá EASA og FAA fyrir CSeries CS100 vélinni sem er ætlað að keppa við A320neo ásamt Boeing 737 MAX en CSeries-vélarnar hafa þó aðeins verið pantaðar í yfir 240 eintökum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga