flugfréttir

6,2 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll árið 2016

- Næstum 30 prósenta farþegafjölgun milli ára

25. nóvember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 12:05

Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia

Gert er ráð fyrir að 6,2 milljónir farþega muni fara um Keflavíkurflugvöll árið 2016 sem yrði 28,4 prósent fjölgun m.a.v. þann fjölda sem stefnir í að fari um flugvöllinn á árinu sem er að líða.

Isavia kynnti í morgun nýja farþegaspá fyrir árið 2016 en farþegum um Keflavíkurflugvöll hefur verið að fjölga um fjórðung á ári hverju og nálgast 30% aukningu á næsta ári.

Í fyrra fóru 3,8 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll en í ár er gert ráð fyrir að fjöldinn endi í 4.866.000 farþegum eftir gamlársdag sem er 999 þúsund fleiri farþegar en í fyrra.

Farþegar í Leifsstöð

Fjöldi farþega um Keflavíkurflugvöll á fyrstu 10 mánuðum þessa árs voru 6,9% fleiri en gert var ráð fyrr.

Fleiri áfangastaðir og fleiri erlend flugfélög

Flest flugfélög sem fljúga nú þegar um Keflavíkurflugvöll munu fjölga áfangastöðum sínum en mest fjölgun áfangastaða og aukin tíðni mun eiga sér stað hjá Icelandair og WOW air auk þess sem easyJet og fleiri félög munu bæta við áfangastöðum.

Næsta sumar munu því 25 flugfélög fljúga um Keflavíkurflugvöll til 80 áfangastaða í Evrópu og Ameríku.

Í farþegaspánni er gert ráð fyrir um 10% fleiri íslenskum ferðamönnum en árið 2015. Gangi þessi spá eftir munu Íslendingar vera um 24,3% af heildarfjöldanum. Erlendum ferðamönnum hefur það sem af er þessu ári fjölgað um tæp 30% en í spánni fyrir árið 2016 er gert ráð fyrir 22,2% fjölgun þeirra.

Flugstöðin á Keflavíkurflugvelli í maí 2015

Erlendir ferðamenn verða því samkvæmt spánni um 1.540 þúsund eða um 75,7% af farþegum Keflavíkurflugvallar á næsta ári en til samanburðar var þetta hlutfall 64,4% árið 2012 og þá hefur skiptifarþegum sem millilenda á Keflavíkurflugvelli á leið sinni á milli Evrópu og Norður-Ameríku fjölgar hratt og gert er ráð fyrir að þeir verði um 30,7%.

Aukin afkastagera flugstöðvarinnar

Nú vinnur starfsfólk Isavia að því að tryggja sem best þjónustustig yfir háannatíma á Keflavíkurflugvelli næsta sumar. Þær aðgerðir snúast um að klára yfirstandandi stækkanir flugstöðvarinnar, auka afköst til þess að nýta þá fermetra sem fyrir eru betur, auka sjálfvirkni á öllum stigum ferðalagsins um flugstöðina og tryggja að mönnun í öryggisleit og öðrum þjónustustörfum sé nægilega mikil.

Næsta sumar verður flugstöðvarbyggingin um 16% stærri en hún var í byrjun þessa árs, eða um 65.000 fermetrar. Að auki verða opnuð þrjú ný flugvélastæði.









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga