flugfréttir
Þyrla flaug á dróna yfir Los Angeles
Talið er að dróna hafi skollið framan á þyrluna
Talið er að fjarstýrt flygildi hafi skollið á þyrlu yfir Los Angeles sl. mánudagskvöld með þeim afleiðingum að rúða í þyrlunni mölbrotnaði.
Þyrlan, sem er af gerðinni Robinson R22 og var í þjálfunarflugi, fór í loftið frá Long Beach og var á flugi suður
af Sherman Oaks nálægt Van Nuys, þegar fljúgandi hlutur skall á þyrlunni í 2.000 fetum.
Þyrlan lenti á flugvellinum í Van Nuys en flugkennari, sem sat vinstra megin, skarst á höndum og hnjám
er hann varð fyrir plexiglas gleri er rúðan brotnaði.
Rúðan mölbrotnaði skyndilega er þyrlan var á flugi yfir Los
Angeles
Gauillaume Maillet, Flugkennarinnar segir að það sáust engin ljós en talið er alveg öryggt að um dróna
hafi verið að ræða þar sem ekkert blóð eða ummerki eftir fjaðrir sáust sem eru algeng merki er flogið er á fugl.
Maillet segir að hann hafi flogið á fugl á næstum helmingi meiri hraða án þess að rúðan í þyrlunni hafi brotnað.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.