flugfréttir

British Airways vélin sem varð eldi að bráð í Las Vegas mun fljúga á ný

18. desember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 12:17

Boeing 777 vélin á McCarran flugvellinum í Las Vegas skömmu eftir að hún var rýmd

Boeing 777 farþegaþotan frá British Airways, sem varð eldi að bráð á McCarran flugvellinum í Las Vegas í september, mun fljúga á ný.

Aðili hjá British Airways, sem er kunnugur málinu, segir viðgerð muni hefjast mjög fljótlega á skrokki vélarinnar til að gera hana flughæfa á ný og að áhöfn sé á leið til Las Vegas til að fljúga henni til baka.

„Vélin hefur verið skoðuð gaumgæfilega af mjög reyndu tækniliði frá Boeing sem hefur komist að því að skemmdirnar eru minniháttar hvað varðar skrokk vélarinnar og séu þær viðgerðarhæfar“, segir í tilkynningu frá British Airways.

„Viðgerðarteymi frá Boeing mun gera við vélina og verður séð til þess að vélin muni uppfylla sömu öryggisstaðla og splunkuný vél frá verksmiðjunum“.

Skemmdirnar á skrokk vélarinnar

Vélin hefur staðið á McCarran flugvellinum frá því atvikið átti sér stað þann 8. september og hefur British Airways þurft að greiða 48.900 krónur á dag í stæðagjöld sem þýðir að á þeim 101 degi sem vélin hefur verið í Las Vegas er kostnaðurinn því komin upp í 4,9 milljónir króna.

Margir flugsérfræðingar töldu tjón vélarinnar vera of mikið til að hægt væri að gera við hana sem þýddi að vélin hefði verið sjötta Boeing 777 vélin í heiminum sem hefði verið afskrifuð vegna skemmda eða flugslyss.

Um borð voru 157 farþegar og þrettán manna áhöfn og var vélin í flugtaki á leið til London Gatwick þegar eldur kom upp í hreyfli í kjölfar sprengingar og hættu flugmenn vélarinnar við flugtakið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga