flugfréttir
Malaysia Airlines mun hætta með Boeing 777 í mars 2016
Boeing 777-200ER vél Malaysia Airlines
Malaysia Airlines mun hætta með Boeing 777 vélarnar í mars á næsta ári en félagið hefur ákveðið að að síðasta flugið með Boeing 777-200ER verði flogið þann 26. mars 2016.
Síðasta flugið verður flogið frá Guanzhou í Kína til Kuala Lumpur en eftir það verður Boeing 737-800 vél notuð á þeirri
flugleið.
Boeing 777 vélin er sú flugvélategund sem átti í hlut í báðum hörmungunum er flug MH370 hvarf í mars árið 2014 og er flug MH17 var skotið niður í Úkraínu í júlí 2014.
Malaysia Airlines hefur í dag sex Boeing 777-200ER vélar eftir í flotanum en þá mun félagið einnig taka úr umferð allar Airbus A380 risaþoturnar sex.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.