flugfréttir
Ekki í myndinni að panta risaþotuna A380
- Boeing 777-300ER nógu stór vélar fyrir Turkish Airlines
Temel Kotil, framkvæmdarstjóri Turkish Airlines
Turkish Airlines hefur svarað þeim orðrómi sem hefur verið á kreiki um að félagið sé að spá í að kaupa risaþotuna Airbus A380.
Temel Kotil, framkvæmdarstjóri Turkish Airlines, segir að félagið muni ekki taka risaþotuna svo lengi
sem flugfélagið hefur aðsetur á Ataturk-flugvellinum í Istanbul.
„Nei, þetta er ekki inn í myndinni. Þetta er samt glæsileg flugfélag en Ataturk-flugvöllurinn hentar ekki
flugvélum af þessari gerðl“, sagði Kotil í nýlegu viðtali.
Tölvugerð mynd af Airbus A380 í litum Turkish Airlines
„Einnig ef við kaupum A380 þá getum við ekki tekið bara eina eða tvær. Við þyrftum tugi véla þar sem það
er mjög óhentugt að taka nokkrar vélar af nýrri gerð. Þannig þetta er ekki í myndinni“, segir Kotil sem
bætir við að Airbus A330-300 og Boeing 777-300ER séu nógu stórar fyrir leiðarkerfi Turkish Airlines.
Margir fjölmiðlar og aðilar sem hafa fylgst með flugmálum í heiminum hafa kennt Turkish Airlines við
risaþotuna og þá hafði háttsettur aðili innan félagsins sagt að verið væri að skoða kosti risaþotunnar
í herbúðum Turkish Airlines.
Þá voru einnig sögusagnir um að Turkish Airlines væri að spá í að taka tvær Airbus A380 úr flota
Malaysia Airlines þar sem félagið hefur ákveðið að leggja risaþotunum og leitar nú að kaupanda.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.