flugfréttir
Gat kom á Airbus A321 vél eftir sprengingu um borð eftir flugtak
- Tveir farþegar slösuðust sem sátu nálægt vængnum
Vélin hafði verið á lofti í 20 mínútur eftir flugtak frá Mogadishu þegar sprenginin varð
Sprenging varð í morgun um borð í farþegaþotu af gerðinni Airbus A321 skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í Mogadishu í Sómalíu.
Vélin, sem er frá flugfélaginu Daallo Airlines, var á leið til Djibouti og var hún nýfarin í loftið þegar gríðarleg
sprenging varð með þeim afleiðingum að gat kom hægra megin á skrokk vélarinnar.
Um borð voru 74 farþegar og slösuðust tveir þeirra og þar af einn alvarlega en sprengingin átti sér stað nálægt sætaröð 15 og 16 við fremri rætur vængsins en flugmönnunum
tókst að lenda aftur.
Mikil mildi þykir að sprengingin hafi ekki átt sér stað þegar vélin var komin í hærri flughæð
þar sem þrýstingsjöfnunin hefði haft mun alvarlegri afleiðingar.
Á meðfylgjandi myndum má sjá gatið sem kom á vélina en málið er nú til rannsóknar en hugsanleg
gæti verið um hryðjuverk að ræða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.