flugfréttir
British Airways mun snúa aftur til Teheran
British Airways hætti flugi til Teheran árið 2012
British Airways ætlar að hefja aftur áætlunarflug til Írans eftir 4 ára hlé en flogið verður beint frá Terminal 5 á London Heathrow til Teheran sex sinnum í viku.
Talsmaður British Airways segir að Íran sé stór markaður sem mun fara ört vaxandi en Willie Walsh, framkvæmdarstjóri félagsins, gaf í skyn í seinasta mánuði að BA myndi ætla sér að snúa aftur til Íran.
British Airways hætti að fljúga til Teheran í október árið 2012 eftir að British Midland sameinaðist rekstri
félagsins en á þeim tíma var mikil spenna milli Írans og Bretlands.
Áætlunarflug British Airways til Teheran mun hefjast þann 14. júlí og verður flogið með Boeing 777 sex
sinnum í viku en flogið verður daglega frá og með næsta vetri.
British Airways flaug fyrst til Teheran árið 1946 en borgin er ein af þeim 14 nýju áfangastöðum sem
félagið bætir við í leiðarkerfið á þessu ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.