flugfréttir

Þróa lendingarbúnað fyrir þyrlur til að lenda á ójöfnu

21. mars 2016

|

Frétt skrifuð kl. 16:03

Með þessum lendignarbúnaði getur þyrla lent á ójöfnu yfirlagi

Þyrlur þurfa að hafa sléttan flöt til að geta lent eða hafið sig á loft en það gæti breyst í framtíðinni þar sem þyrlur gætu komið til með að geta lent á ójöfnu landslagi, brekku eða í óbyggðum.

Rannsóknarverkefnanefnd bandaríska varnarmálaráðuneytisins (DARPA), sem sér um sérhæfðar tæknilegar rannsóknir fyrir bandaríska herinn, vinnur nú að því að þróa þyrlu með vélfæranlegum lendingarbúnaði.

Með fjórum lendingar„fótum“ í stað hefðbundins lendingarbúnað getur þyrlan lent eða hafið sig á loftið í brekku með allt að 20 gráðu halla.

Lendingafæturnir koma með skynjurum sem reikna út landslagið rétt áður en þyrlan lendir og stilla sig af svo þyrlan sjálf geti verið lárétt þrátt fyrir brekku eða hrjóstrugt landsvæði.

Þyrlan gæti einnig lent á svæði þar sem náttúruhamfarir hafa átt sér stað og verið því nálægt björgunaraðgerum í stað þess að þurfa að lenda á sléttlendi langt í burtu og þá gæti þyrlan einnig lent á skipi í slæmum sjó.

Lendingarbúnaðurinn, sem verið er að þróa, er fimm sinnum líklegri til að koma í veg fyrir skemmdir á þyrlu í harkalegri lendingu þar sem búnaðurinn skynjar nokkrum sinnum á sekúndu yfirborðið sem verið er að lenda á.

Prófanir á tilraunarmódeli hófust í september sl. haust í tækniskólanum í Georgíu í Bandaríkjunum og er verið að þróa búnaðinn enn frekar.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga