flugfréttir

Þrjú flugslys í heiminum á einum sólarhring

- Fraktvél frá Silk Way fórst í Afghanistan og B-52 brotlenti í Guam

19. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 19:18

Þrjú flugslys hafa átt sér stað í heiminum sl. sólarhring

Síðasti sólarhringur hefur tekið sinn toll í fluginu en í gær og í dag hafa þrjú flugslys átt sér stað í heiminum.

Fyrir utan Airbus A320 farþegaþotuna frá EgyptAir, sem talið er víst að hafi farist í Miðjarðarhafi í nótt, þá fórst í gær fraktvél af gerðinni Antonov An-12 frá Silk Way Airlines í Afghanistan.

Vélin var nýfarin í loftið frá herstöðinni Camp Dwyer klukkan 14:30 að íslenskum tíma en skömmu eftir flugtak kom upp bilun í einum af fjórum skrúfuhreyflum vélarinnar en vélin var í innanlandsflugi.

Níu manns voru í áhöfn vélarinnar en aðeins tveir komust lífs af sem báðir voru úkraínskir flugvirkjar en þrír um borð voru frá Úkraínu, fimm frá Azerbaijan en flugstjórinn var frá Uzbekistan.

Vélin hafði lent á Dwyer-flugvellinum eftir flug frá Bagram og stóð til að halda fluginu áfram til Mary International flugvallarins í Turkmenistan.

B-52 Stratofortress fórst í Guam

Bandarísk B-52H Stratofortress sprengjuflugvél fórst skömmu eftir flugtak frá bandarísku Anderson Air Force Base herstöðinni á eyjunni Guam í Kyrrahafi í gærkvöldi klukkan 22:30 að íslenskum tíma.

Vélin hafði nýlega flogið til eyjunnar frá Norður-Dakóta á meginlandi Bandaríkjanna en um borð var sjö manna áhöfn og komust allir lífs af.

Slökkvilið við logandi flak B-52 sprengjuvélarinnar á eyjunni Guam

Vélin var við hefðbundnar heræfingar þegar hún fórst en áhöfnin náði að koma sér að sjálfdáðum úr flaki vélarinnar sem endaði í ljósum logum.

Bandaríski flugherinn hefur notað B-52 sprengjuvélarnar í yfir 60 ár en yfir 700 eintök voru smíðuð á þeim 10 árum sem hún var framleidd frá árinu 1952 til 1962.

Bandaríski flugheirnn hefur notað til skiptis B-1, B-2 og B-52 sprengjuvélar við hernaðaraðgerðir sínar á Guam frá því herinn jók umsvif sín á Kyrrahafinu árið 2004.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem B-52 sprengjuvél ferst við Guam en ein slík brotlenti árið 2008 með þeim afleiðingum að sex um borð létu lífið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga