flugfréttir
Santiago í Chile verður lengsta flug British Airways
Santiago í Chile verður fjarlægasti áfangastaður British Airways
British Airways mun árið 2017 fljúga sitt lengsta flug en þann 3. janúar eftir áramót mun félagið hefja beint áætlunarflug frá London til Santiago í Chile.
Flugtíminn verður næstum 15 klukkustundir eða 14 tímar og fjörutíu mínútur en flogið
verður þrisvar í viku með Boeing 787-9 þotum.
Fjarlægðin frá London til Santiago er 11.645 kílómetrar en British Airways hefur verið að hasla sér
völl í Suður-Ameríku að undanförnu en félagið byrjaði að fljúga til Lima í Perú þann 4. maí sl.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem British Airways flýgur til Chile en félagið flaug til Santiago fyrir 16 árum
síðan frá árinu 1993 til ársins 2000.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.