flugfréttir
Brakið tilheyrir ekki vélinni - Leit stendur enn yfir
Vélin átti 25 mínútur eftir til Kaíró þegar samband rofnaði við hana kl. 00:33 í gærkvöldi
Greint hefur verið frá því að brak sem fannst á floti í sjónum í Miðjarðarjhafinu tilheyrir ekki egypsku farþegaþotunni en fyrr í dag var sagt að torkennilegur appelsínugulur hlutur í sjónum væri brak úr EgyptAir vélinni sem hvarf í gærkvöldi.
Stjórnvöld í Egyptalandi hafa nú 5 klukkustundum síðar sagt að brakið sé ekki úr vélinni og hefur einnig verið viðurkennt að um fljótfærni
var að ræða þegar tilkynnt var að búið sé að staðsetja flakið.
Ahmed Adel, varaformaður EgyptAir, tekur í sama streng og leiðréttir fyrri yfirlýsingar og segir að brakið sem sást á sjónum sé ekki
úr egypsku farþegaþotunni.
Skýringarmynd af staðsetningu vélarinnar er hún hvarf
Abdel Fatah al-Sisi, forseti Egyptalands, hefur fyrirskipað egypska flughernum og sjóhernum að hefja viðamikla björgunaraðgerðir og
leit að flugvélinni.
Enn er ekkert vitað um orsök þess að vélin hvarf og er ekki búið að útiloka bilun né hryðjuverk en talið er að vélin hafi farist skammt suðaustur
af eyjunni Krít.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.