flugfréttir

Fyrsta flug Icelandair til Montréal

20. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 11:36

Montreal er sextándi áfangastaður Icelandair í Norður-Ameríku

Icelandair hóf í gær áætlunarflug til Montreal í Kanada. Montreal er sextándi áfangastaðurinn í Norður-Ameríku sem Icelandair býður upp á í leiðakerfi sínu en flogið er fjórum sinnum í viku fram í nóvember, á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum.

Flug félagsins til kanadískra borga hefur aukist jafnt og þétt frá því loftferðasamningur milli Íslands og Kanada náði fram að ganga 2013. Fram að því hafði Icelandair haft heimild til flugs til Halifax frá 1998, en síðan hafa áfangastaðirnir Toronto, Edmonton og Vancouver bæst við, og nú Montreal.

Montreal er næst stærsta borg Kanada og stærsta borgin í Quebec fylki, með um fjórar milljónir íbúa. Borgin er miðstöð viðskipta, menningar og lista fyrir frönskumælandi Kanadamenn, og þykir yfirbragð hennar vera evrópskt í samanburði við aðrar borgir í Norður-Ameríku. Flug milli Íslands og Montreal tekur um 5 klukkustundir.

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair afhendir Cristiane Beaulieu aðstoðarforstjóra Montreal-flugvallar líkan af Icelandair flugvél við móttökuathöfn á flugvellinum í gærkvöldi.

“Montreal fellur vel að leiðakerfi Icelandair og styrkir starfsemi okkar. Við getum boðið mjög hagkvæman ferðamáta fyrir ferðafólk og viðskiptalíf milli borgarinnar og allra helstu borga Evrópu með millilendingu á Keflavíkurflugvelli,” segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. “Auk þess opnum við enn einn markaðinn fyrir íslenska ferðaþjónustu og áhugaverða borg fyrir Íslendinga í ferðahug”.

Icelandair hefur á þessu ári bætt við áfangastöðunum Chicago, Aberdeen og París Orly og flýgur því til 16 áfangastaða í Norður-Ameríku og 27 áfangastaða í Evrópu.

Norðurljósavélin, Hekla Aurora, í lendingu á Montreal flugvalli í fyrsta sinn







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga