flugfréttir

VietJet Air pantar 100 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 200

23. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 10:51

Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX 200 í litum VietJet Air

Lágfargjaldaflugfélagið VietJet Air í Víetnam hefur lagt inn pöntun til Boeing í 100 farþegaþotur af gerðinni Boeing 737 MAX 200.

Pöntunin er ein sú stærsta í þessa tegund af Boeing 737 MAX en samningurinn, sem er metinn á eitt þúsund fjögur hundruð og fjóra milljarða króna, var undirritaður í Hanoi í opinberri heimsókn, Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, til Víetnam.

VietJet Air er eitt af þeim asísku lágfargjaldafélögum sem eru í mikilli útrás en félagið flaug sitt fyrsta áætlunarflug árið 2011 og hefur í dag 35 þotur í flotanum sem allar eru af gerðinni Airbus A320 og A321.

Félagið mun koma til með að hafa blandaðan flota af Airbus vélum og Boeing vélum þar sem VietJet Air hefur sl. ár pantað yfir 180 þotur af gerðinni Airbus A320, A319, A321 auk þess sem félagið pantaði einnig fimmtíu Airbus A320neo vélar og 30 vélar af gerðinni Airbus A321neo.

Boeing 737 MAX 200 vélarnar verða afhentar frá árinu 2019 til ársins 2023 en með afhendingunum mun floti VietJet Air fara yfir 200 þotur, tólf árum eftir stofnun.

Boeing 737 MAX 200 vélarnar er 200 sæta útgáfa af Boeing 737 MAX sem kemur með fleiri sætum og hefur verið sérstaklega markaðsett fyrir lágfargjaldaflugfélög en meðal þeirra flugfélaga sem hafa pantað þessa tegund er Ryanair.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga