flugfréttir

Tvær F-16 sendar til móts við vél Delta - Báðir flugmennirnir sofandi

- Gerðist 16 klukkutímum eftir að egypska farþegaþotan hvarf

24. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:03

Vélin var að nálgast gríska lofthelgi þegar ekkert svar kom frá vélinni / Myndin er samsett

Báðir flugmennirnir um borð í farþegaþotu frá Delta Airlines sofnuðu í stjórnklefanum í 33.000 feta hæð, skammt suðaustur af Tirana, höfuðborg Albaníu, sl. fimmtudag (19. maí), nokkrum klukkutímum eftir að farþegaþotan frá EgyptAir fórst yfir Miðjarðarhafi.

Samband rofnaði við vélina, sem er af gerðinni Boeing 767-400, en vélin var í leiguflugi frá Frankfurt Hahn flugvellinum til Kuwait þegar flugumferðarstjórnin á Griklandi náði ekki sambandi við flugmenn vélarinnar.

Af öryggisástæðum, og í ljósi þess að aðeins voru 16 klukkustundir frá því samband rofnaði við egypsku farþegaþotuna, var ákveðið að ræsa út tvær F-16 orrustuþotur frá gríska flughernum sem flugu til móts við við vélina.

Orrustuþoturnar komu að Delta-vélinni 20 mínútum síðar skammt suður af Santorini og reyndu herflugmennirnir að ná augnsambandi við flugmennina en þeir reyndust sitja eðlilega í sætum sínum en litu út fyrir að vera sofandi.

Önnur orrustuþotan fór fyrir framan flugvélina á meðan hin fór við hlið vélarinnar til að ná athygli farþega sem létu flugliðana vita sem fóru og bönkuðu á dyr stjórnklefans og náðu að vekja flugmennina frá værum blundi.

Flugmennirnir höfðu samband við grísku flugumferðarstjórnina um 6 mínútum eftir að orrustuþoturnar komu að vélinni.

Vélin, sem var á sjálfstýringu, yfirgaf flugumferðarsvæðið í Aþenu skömmu síðar og lenti á áætlun í Kuwait City en orrustuþoturnar snéru við til herstöðvar.

Grísk flugmálayfirvöld hafa haft samband við Delta Air Lines og látið þá vita af atvikinu og sent þeim reikning fyrir umstanginu og eldsneytinu sem fór á F-16 þoturnar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga