flugfréttir

SAS mun taka tímabundið í notkun Bombardier Dash 8 Q400

24. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:48

SAS hætti með Bombardier-vélarnar árið 2007

SAS (Scandinavian Airlines) mun í næsta mánuði fá aftur Bombardier Dash 8 Q400 í flota sinn en félagið hætti með þær fyrir 9 árum síðan, árið 2007, eftir þrjú óhöpp sem áttu sér stað þar sem lendingarbúnaður vélanna gaf sig.

Seinasta atvikið átti sér stað þann 27. október árið 2007 þegar ein af Bombardier Q400 vélunum var að nálgast Kaupmannahöfn eftir flug frá Bergen en þá kom í ljós vandamál með hægra hjólastellið. Flugmenn vélarinnar slökktu á hægri mótornum áður en vélin nauðlenti á Kastrup en engann sakaði.

Eftir atvikið var ákveðið að kyrrsetja allar Bombardier Sash 8 Q400 vélarnar 27 í flota SAS en atvikið þar á undan átti sér stað mánuði áður, 12. september 2007, en fyrsta atvikið átti sér stað fimm dögum þar áður, þann 7. september.

Þrátt fyrir þetta mun SAS fá Bombardier Q400 aftur í flotann, næstum 9 árum síðar, en aðeins er um að ræða tímabundna leigu í sumar og verður það ekki SAS sem mun sjá um rekstur vélarinnar.

Vélin kemur frá breska flugfélaginu Flybe sem hefur leigt SAS fimm ATR 72-600 skrúfuvélar hingað til en vegna viðhalds þarf að bæta fleiri vélum við yfir sumartímann og hefur því verið ákveðið að láta SAS fá eina Bombardier Q400 vél.

Flybe hefur stærsta Bombardier Q400 flota heims en félagið hefur alls 52 slíkar í flotanum og eru sautján til viðbótar á leiðinni.

Vélin verður í litum Flybe og verður henni aðallega flogið frá Arlanda-flugvellinum í Stokkhólmi til annarra áfangastaða í Svíþjóð auk Finnlands.

Vélin var smíðuð árið 2008 og var ýtt úr verksmiðju eftir óhöppin þrjú hjá SAS.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga