flugfréttir

Airbus-þotu sökkt í Miðjarðarhafið undan ströndum Tyrklands

7. júní 2016

|

Frétt skrifuð kl. 06:44

Flugvélin var keypt fyrir 11 milljónir króna og ferjuð frá Istanbúl til vesturstrandar Tyrklands

Gömul farþegaþota af gerðinni Airbus A300 var sl. laugardag dregin út á haf út á Aegean-flóa milli Tyrklands og Grikklands, undan ströndum borgarinnar Izmir, þar sem vélinni var sökkt.

Tilgangurinn er til þess að laða að fleiri kafara sem munu nú fá tækifæri á því að geta niður að flugvélaflaki en fjöldi ferðamanna hefur undanfarin ár ferðast til Tyrkalands til að stunda köfun en slíkum ferðamönnum hefur þó farið fækkandi af ótta við hryðjuverk í nærliggjandi löndum.

Flugvélin, sem er 36 ára gömul, smíðuð árið 1980, var keypt fyrir um 11 milljónir króna af einkaflugfyrirtæki og var hún rifin niður að hluta til á flugvellinum í Istanbul í apríl en því næst var hún ferjuð til bæjarins Kusadasi.

Vélinni var sökkt undan ströndum tyrkneska bæjarins Kusadasi

Mörgum uppblásnum belgjum var komið fyrir undir vélinni sem héldu henni á floti meðan dráttarbátur dró hana út á haf á meðan hundruðir manna fylgdust með á ströndinni.

Bæjarstjóri sveitafélagsins á svæðinu segir að búist sé við því að flugvélin eigi eftir að laða að yfir 250.000 kafara árlega á svæðinu.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem flugvél er sökkt á þessum slóðum til að búa til skemmtilegt neðansjávarumhverfi fyrir kafara en þremur öðrum minni flugvélum hefur verið sökkt frá árinu 2009 undan ströndum Antalya.

Fleiri myndir:









Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga