flugfréttir

FAA: Ekki nauðsynlegt að flugmenn fari í sérstaka geðrannsókn

13. júní 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:14

Yfirmaður bandarískra flugmálayfirvalda segir að nauðsynlegt sé að eyða fordómum um andlega vanlíðan og geðheilsu þegar kemur að fluginu

Ekki er þörf á að láta flugmenn gangast undir sálfræðilegt próf til að skera úr um hvort að geðheilsa þeirra sé í lagi.

Þetta sagði Michael Huerta, formaður bandarískra flugmálayfirvalda (FAA), sl. fimmtudag aðspurður út í hvort breytinga sé að vænta varðandi eftirlit með andlega heilsu flugmanna í kjölfar þess er farþegaþota frá Germanwings fórst í mars árið 2015 eftir að aðstoðarflumaður vélarinnar grandaði henni vísvitandi.

Huerta segir að ekki sé nauðsynlegt að flugmenn séu látnir taka sérstakt sálfræðilegt próf þar sem flestir fluglæknar hafa gengist í gegnum sérstaka þjálfun til að leggja mat á andlega heilsu flugmanna og sé því ekki þörf á sérstöku mati geðlækna.

Huerta segir að sálfræðilegt próf gefi aðeins upp mynd af því andlega ástandi sem viðkomandi flugmaður er í á því augnabliki sem slíkt próf er tekið og hafi það því ekki mikið upp á sig til að fyrirbyggja að atburður eins og sá sem gerðist í fyrra í frönsku Ölpunum geti endurtekið sig.

Þá tók Huerta það fram að bandarísk flugmálayfirvöld séu að hvetja flugfélög til að hrinda í framkvæmd verkferli sem miðar af því að auka meðvitund flugmanna um sína eigin andlegu líðan, draga úr fordómum um andlega heilsu og hvetja flugmenn til þess að tilkynna ef þeir telja að þeir séu ekki færir um að fljúga vegna geðheilsu eða andlega vanlíðan.

„Við verðum að eyða fordómum um geðræna heilsu í fluginu svo að flugmenn eru líklegri til þess að tilkynna slík atvik af sjálfdáðum svo þeir fái viðkomandi meðhöndlun ef þess þarf og geti því snúið aftur til vinnu með fulla flugheilsu“, segir Huerta.

Michael Berry, fluglæknir, kom einnig fram á sama fréttamannafundi þar sem hann tók í sama streng og sagði að mjög vel sé fylgst með geðheilsu flugmanna í ítarlegri læknisskoðun sem þeir gangast reglulega í gegnum til að viðhalda réttindum sínum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga