flugfréttir
Icelandair bætir við tveimur aukaflugum til Parísar vegna EM2016
Boeing 757-300 vél Icelandair
Icelandair hefur ákveðið að bæta við áætlun sína tveimur aukaflugum til Parísar vegna leiks Íslands og Frakklands í átta liða úrslitum EM 2016.
Flogið verður með 183 sæta Boeing 757 vél Icelandair frá Keflavíkurflugvelli síðdegis á föstudag og síðdegis á laugardag og jafnframt verður bætt við tveimur flugum frá París á mánudagsmorgni og þriðjudagsmorgni.
Þessi flug verða hluti af almennu leiðakerfi Icelandair og eru komin í sölu á vef icelandair en ef þörf verður á mun Icelandair einnig leigja inn breiðþotu og bæta við fleiri flugum til Parísar fyrir leikinn í París.
Þá kemur fram í yfirlýsingu frá Icelandair að félagið mun ekki hafa tök á að bjóða upp á pakkaferðir með aðgöngumiðum, gistingu osfrv. í tengslum við leikinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.