flugfréttir

Icelandair bætir við öðru aukaflugi til Parísar með Airbus A330

28. júní 2016

|

Frétt skrifuð kl. 17:33

TF-ISO (Boeing 767) í flugtaki í Amsterdam á dögunum

Sennilega hafa aldrei eins margir Íslendingar viljað fara til Frakklands og einmitt nú en Icelandair hefur brugðist tvisvar í dag við eftirspurninni þar sem framundan er leikur Íslands og Frakka í átta liða útslitum.

Icelandair tilkynnti fyrir hádegi að búið væri að bæta við tveimur aukaflugferðum til Parísar á föstudag og laugardag og öðrum tveimur ferðum til baka á mánudag og þriðjudag.

Nú hefur verið ákveðið að bæta við aukaflugi með stærri vél og hefur Icelandair fengið breiðþotu af gerðinni Airbus A330 frá portúgalska flugfélaginu HiFly til að fara aukaferð til Parísar.

Laus sæti í fluginu verða einungis til sölu á vef Icelandair og er sala hafin en flugið fram og til baka kostar kr. 116.000 með sköttum og gjöldum inniföldum, sem er sama kostnaðarverð og á aukafluginu fyrir leikinn gegn Englandi.

Flókið ferli hefur verið fyrir fólk að nálgast miða á leikinn og fá flug á sama tíma og hafa margir þurft að taka áhættu á að geta orðið sér út um miða eftir að hafa pantað flug og öfugt.

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir í samtali við Alltumflug.is að það sé ekki mjög einföld ákvörðun fyrir marga að komast á leikinn þar sem óvíst er hverjir ná að verða sér út um miða og má gera ráð fyrir því að margir verði að vinna í því í dag og á morgun áður en flug er pantað.

Brottför með aukafluginu með Airbus A330 vélinni frá Keflavíkurflugvelli verður kl. 8:00 að morgni sunnudagsins 3. júlí, sem er sá dagur sem leikurinn fer fram og til baka frá París er brottför kl. 19:40 á mánudeginum frá Charles de Gaulle og lent í Keflavík kl. 21:00.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga