flugfréttir
Óvíst hvort að Iran Air taki Airbus A380
Tölvugerð mynd af Airbus A380 risaþotu í litum Iran Air
Svo gæti farið að Iran Air muni ekki taka Airbus A380 risaþoturnar sem var hluti af sögulegri pöntun sem félagið gerði er það skrifaði undir samning um kaup á yfir 100 farþegaþotum frá Airbus í janúar á þessu ári.
Íranir pöntuðu 118 farþegaþotur og þar af tólf Airbus A380 risaþotur en nú hefur komið í ljós að Íranir hafa einhverjar efasemdir
í ljósi þess að enn eru viðskiptaþvinganir í gangi á landið frá Bandaríkjunum.
„Við höfum alltaf tekið það fram að þetta er möguleiki með risaþotuna en það gæti vel verið að við skiptum yfir í aðra tegund“ segir háttsettur
yfirmaður sem starfar á vegum íranskra stjórnvalda.
Samingurinn, sem Íranir gerðu við Airbus í janúar, býður ennþá samþykkis en Airbus þarf t.a.m. að fá leyfi samþykkt frá bandarískum stjórnvöldum
þar sem 10% af íhlutum í farþegaþotur Airbus eru framleiddir í Ameríku.
Einn talsmaður Airbus segir að viðræður séu enn í gangi vegna samþykktar á þeim samningi sem var undirritaður í janúar við Iran Air og tekur
það sinn tíma að fá það í gegn og því næst á eftir að ganga frá endanlegum samningi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.